Thursday, December 14, 2006

flutt

Well, aftur komin á bloggerinn! Mér var bara nóg boðið þarna hinum megin og nenni ekki að bíða endalaust eftir að þetta lagist... þannig að hér verð ég í framtíðinni. Vonandi.

Ég fer að hallast að því að ég sé á svörtum lista í netheimum. Fyrir hvað veit ég ekki. Það er eins og ég sé elt ein hérna. Alltaf allt bilað :-(

En já, ég er búin í prófum. Glöð með það en samt smá leið. Leið yfir að skólinn sé að verða búinn. Svo finnst mér pínu gaman í prófum og stressinu sem því fylgir. Það tekur alveg á en einhvern veginn þrífst ég á svona stressi. Einhver aukakraftur sem hleypur í mann. Þessi próf hafa samt auðvitað verið ólík öllum öðrum prófum sem ég hef tekið um ævina. En mjög gaman að prófa það líka ;-) Síðasta prófið var í morgun og ég gerði Smoky förðun. Ég held að mér hafi bara gengið ágætlega. Jújú alltaf eitthvað sem mætti sjálfsagt gera pínu betur en veltum okkur ekki upp úr því.

En nú er bara að fara að kaupa jólagjafir og senda út jólakortin. Verð samt að minnast á eitt með jólakortin frá okkur þessi jólin. Þar sem ég hef alltaf verið svo fordómafull á jólakort sem fólk skrifar ekki sjálft á, heldur lætur prenta textann, þá verð ég að viðurkenna að ég er ekki að praktissa vott æ prítsj í þeim efnum núna :-/ Þið afsakið. Extra persónulegt kort næstu jól í staðinn ;-)

Éndilega kommentið til að láta mig vita að þið séuð búin að átta ykkur á flutningunum. Svo þarf ég að fara að setja upp allt dótið mitt hér og linkana ;-)

4 comments:

  1. Búin að fatta þig ;)

    Þetta með jólakortin - ég var svona líka, vildi hafa þau persónuleg - en eftir að hafa skrifað

    Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hittumst hress á nýju ári eða Takk fyrir það liðna o.s.frv.

    í nokkur ár gafst ég upp. Hvað er persónulegt við það? Þeir voru heppnir sem fengu fyrstu fjögur kortin sem ég skrifaði, rest hljómaði e-ð á þennan veg.
    Ég ákvað því að myndin væri það persónulega við kortið, enda man aldrei neinn hvað maður skrifar þegar maður er ekki að skrifa neitt merkilegra en þetta, myndin bara skoðuð.

    ReplyDelete
  2. til lukku Ausa, nú áttu flest lén í netheimum, vel gert. Ferð að slá í fjölda síma sem Örn hefur átt um ævina og það er gríðar vel

    ReplyDelete
  3. Vúhú!
    Já ég veit, á endalaust margar síður. Og fékk m.a.s. bakþanka áðan varðandi nafnið á þessari... svoldið subbulegt kannski, hehe ;-)

    Já ópersónulegt kort kannski en við höfum samt mynd, það er aðalmálið, right?

    ReplyDelete
  4. Mér finnst nokkuð ljóst hverjir eru dyggstu bloggstuðningsmenn þínir. Við Berglind þefum þessar síður þínar svoleiðis uppi!!

    ReplyDelete