Í Eyjum
Þá erum við stödd í eyjum í fyrsta skiptið á þrettándanum. Þetta eru víst hátíðahöld sem maður verður að upplifa og mikið um að vera. Ég hef aldrei farið á nein hátíðahöld tengd þrettándanum og yfirleitt finnast mér hátíðarnar bara búnar eftir áramót. En þetta er lengra hér í Eyjum þar sem þessi dagur er svona sérstakur. Enda er hér enn macintosh og konfekt á borðum og við auðvitað liggjum í því (sérstaklega við Jökull), rjómaterta á kvöldin og hangikjöt og allur pakkinn. Sem betur náði ég að taka tvær BC æfingar í síðustu viku til að jafna þessa miklu óhollustu aðeins út :-/
Nú stendur yfir atvinnuleit hjá minni. Er búin að tékka á einu sem ég er ekki nógu bjartsýn en er annars með augun galopin fyrir einhverju spennandi. Langar í einhverja skemmtilega vinnu ekki bara "eitthvað". Það eru samt að detta inn eitt og eitt förðunarverkefni sem er gott að geta hlaupið í. Td er ég að fara að farða fyrir tónlistarverðlaun Fm 957 í næstu viku.. það verður bara gaman hugsa ég.
Jæja, best að fara að gera eitthvað fyrst kagglinn minn er kominn í hús. Er búin að vera ansi mikið ein hérna núna.... eða kannski ekki ein, heldur án hans... Get ekki neitað því að mér finnist örlítið betra að hafa hann með okkur hér.

1 Comments:
At 12:33 PM,
Auður said…
Jább það er rétt! Þetta lengir jólin alveg svakalega, þetta er bara aðalhúllumhæið þarna í Eyjum, flugeldasýningar og allur pakkinn..
Post a Comment
<< Home