oink oink

Thursday, January 18, 2007

Bannað að gera grín..

.. þó ég hafi stofnað bloggsíður á u.þ.b. öllum bloggkerfum sem til eru. Þetta er bara orðin spurning um að hætta þessu alveg eða halda áfram að skipta þar til ég finn kerfi sem virkar lengur en smástund í senn.
Og því skipti ég einu sinni enn... þeir sem nota blogger ættu að skilja af hverju. Maður má bara skrifa x langar færslur hér því annars dettur allt út og þetta er farið að reyna allverulega á þolrifin!

Ég ætla að elta hana Siggu mína, hún mælir með blog.is og ég er farin þangað! Látið vita ef þið viljið slóðina :-)









Djók.

audurin.blog.is

Boooooring

Vá hvað ég er að verða græn á þessum veikindum hérna. Sjötti dagurinn og hann er ekkert betri! Og ef ég er orðin þreytt þá get ég bara rétt ímyndað mér hvað hann er að verða leiður á þessu...

En það er aksjón á Alþingi núna þannig að við getum skemmt okkur yfir því ásamt því að lesa barnabækur og púsla.

Wednesday, January 17, 2007

ekki mikið um að vera... og þó

Hér er enn einn lítill heima með hita og hor! Þetta er fimmti dagurinn í dag og honum versnar bara frekar en hitt. Fór með hann til læknis áðan en ekkert alvarlegt í gangi, engar sýkingar eða neitt þannig. Þannig að við höldum áfram í stílunum og nefspreyinu.

En það tekur á að hanga svona heima í hjúkrun allan daginn. Okkur var boðið í mat í Hæðó í gær þar sem Hjördís systir er að fara til Perú á morgun í spænskuskóla og sjálfboðastarf. Svoldið ólík systkinum sínum þessi. Og verður þar í einhverja 2 eða 3 mánuði. Eftir matinn fór ég aðeins að vinna í ljósmyndastúdíói úti á Granda og svo í saumó til Möggu þar sem voru Maja, Karin og Bella mættar. Ferlega fínt, náði smá brauðrétt, kökusneið og tvöföldum latte þar áður en ég fór heim. Hefði reyndar mátt fá mér einfaldan latte þar sem ég svaf eiginlega ekkert í nótt. Algjörlega andvaka og fór svo í BC kl rúmlega 6. Mætti segja mér að ég yrði död í kveld.

Annars er ekkert þannig að frétta, bara veikindi, stöku vinna, atvinnuleit, pælingar og heilabrjót vegna húsbyggingar, þrif og þvottar! Svo þykist maður ekki hafa neitt að gera!

Tuesday, January 16, 2007

Die Hause

Jæja þá er það málið! Er bara hægt að blogga smá í einu... stælar.
Langaði svo að setja þess mynd með síðustu færslu en hún kemur þá bara núna.

Þessi mynd var tekin á sunnudaginn. Þarna sést gluggi á herberginu hennar HK og svo bílskúrinn, þar á milli er innskot þar sem inngangurinn verður. Núna er hægt að labba inn í húsið og þá áttar maður sig betur á stærðinni og þetta verður STÓRT hús! 295 fm eru víst ekkert lítið :-)


Ohh hvað ég hlakka til að flytja :-)

Byggingarmál

Ég er heima með veikan strákalubba í dag. Ég ætlaði að setja hann á leikskólann í dag en hann er bara ekki orðinn nógu góður. En með nokkrar kommur og mikið hor. Þannig að við reynum bara að hafa eins kósí í dag og hægt er.

Ég kíkti til í Ýr í gærkvöldi þar sem við þurftum að fara yfir ýmislegt í teikningunni okkar. Nú eru ljósin það sem þarf að ákveða áður en steypt er meira. Þvílíkt sem þarf að hugsa fyrir nokkrum ljósum. Og ekkert nokkrum ljósum neitt, heldur bara fullt af þeim.... annars verður víst bara myrkur. Maður er ekkert vanur að þurfa að spá svona mikið í svona hluti þannig að þetta er auðvitað svoldið mál að gleyma ekki hinum og þessum stað sem gott væri að geta haft ljós á! Við vorum endalaust að fatta nýjan og nýjan stað þar sem er möst að hafa ljós. Sem betur fer er Ýr með mjög gott auga fyrir þessu... eins og svo mörgu öðru! Heppin við..

Eins þarf að ákveða svo margt sem ég var ekkert farin að pæla í af viti eins og td hvort við ætlum að hafa hornbaðkar eða venjulegt á efri hæðinni, hellurnar eða vaskinn á eyjunni í eldhúsinu (sem er uppi) eða ekki... og margt svona. Já og fara að velja sér eldhúsinnréttingu. Já, það er gaman að pæla í þessu en samt er maður eitthvað svo óöruggur stundum með ákvarðanirnar, ekki laust við að það örli á valkvíðanum sem Rósa talaði um á sínum tíma, hehe.

?

Þori varla að segja það en ég er að hugsa um að prófa enn eitt kerfið! Og stofna því enn eina síðuna! Ég er alltaf að pikka hérna inn eitthvað svaka og svo fer það bara til andskotans! Þetta er að gera mig geggjaða....

Monday, January 15, 2007

oldies


Ég er svo yfir mig hamingjusöm með þessar fimleikaæfingar að ég er barasta í skýjunum! Þetta er jafnvel skemmtilegra en hélt að það yrði... og ég hélt að það væri ekki hægt. Alls konar skemmtilegar æfingar; góð upphitun, fullt af skemmtilegu þreki og teygjum, stökkæfingar á gólfi, trampólín.... alveg hámarksútrás í heila tvo tíma. Maður er vel rjóður í kinnum og sveittur, hehe.
Það sem kemur mér mest á óvart var ég sjálf samt. Var að geta og þora miklu meira en ég átti von á. Gerði meira að segja araba-heljar á dýnu, framheljar, flikk og allan pakkann, jáhá! Og það er svo miklu minna mál en ég bjóst við enda eru áhöldin svo ótrúlega góð og það hjálpar heilan helling.
Það er svo gaman að sjá bestu fimleikastelpurnar hérna í dag. Þvílíkar framfarir í íþróttinni. Maður þótti nú alveg ágætur í þessu hérna í dentid en maður væri næstum lélegur á mælikvarðanum í dag! Reyndar eru áhöldin og aðstæður svo þúsund sinnum betri núna. Gryfjurnar voru td nýkomnar þegar ég var að hætta og allar dýnur fyrir stökkseríur, bretti, trampólínin... þetta eru svo flott og góð áhöld núna að það er ekki hægt að líkja því saman við þetta dót sem við vorum með í "gamla daga". Svo maður tali nú ekki um þegar við þurftum alltaf að eyða drjúgum tíma í að setja upp áhöldin í byrjun æfing og ganga svo frá þeim í lokin því þá átti skíðadeildin salinn! Það er ekkert lítið mál að setja upp tvíslá og ganga frá henni aftur! Allavega ekki þegar maður er 10 - 12 ára ;-)

Djísús, hvað ég er gömul.... tala eins og gömul kona. Næsta fimleikaæfing á fimmtudaginn, hlakka til :-) Og BC í fyrró, hlakka líka til... ungfrú ofvirk.

Sunday, January 14, 2007

Látum okkur nú sjá

.. er þetta að ganga núna?

Thursday, January 11, 2007

Nýr gæi

Var ég búin að sýna ykkur nýja kæró-inn minn? Alveg viss um að þetta sé ljósabekkjunum að þakka ;-)

















Sagði saklausum manninum að ég væri að taka þessa mynd fyrir dóttur mína.... en það var auðvitað helvítis lygi.

Tuesday, January 09, 2007

sólbruni í janúar

Djísús! Þótt ég hefði bara farið í 7 mínútna ljósatíma í gær er ég skaðbrennd! Brennd allsstaðar, illt þegar ég geng (sérstaklega í gallabuxum), illt þegar ég sit (jú nó ver), illt í framan og bara almennt aum. En sé stóran mun á húðinni sem er eini plúsinn. Ef ég fer aftur í ljós þá lær ég 3-5 mínútur nægja. Annars er af sem áður var með tímann í þessu... maður þurfti alltaf að vera tuttugu mínútur eða 12 mínútur í túrbó. Nú eru þetta bara túrbó bekkir og maður ræður tímanum, 3, 5, 7, 10 mín... bara það sem maður vill. Trúi ekki að ég sé farin að tala vel um ljósabekki! Nei vont vont vont... það er bara svo gaman að vera pínu brúnn.

Núna eru strákalingarnir mínir í leikskólanum í fyrsta skipti síðan fyrir jól. Það verður gott að komast í rútínuna aftur. Jökull er stútfullur af gullkornum og við erum stundum í meiriháttar basli við að grenja ekki úr hlátri yfir pælingunum hans. King Kong er hetjan hans og hann eyðir góðum tíma á hverjum degi að finna út hvort einhver sé sterkari en King Kong. Pabbi hans hefur komist næst því að vera sterkari en hann hefur samt enn vinninginn. Ég er viss um að hann dreymir þennan blessaða apa á hverri einustu nóttu, honum finnst hann svoooo flottur!

Ein mynd að lokum..

















Nokkrar frá jólunum hér.

Monday, January 08, 2007

Komin heim

Ohh ég var búin að gleyma því hvað það er yndislega frábært þegar maður er búinn að vera með hroll í marga daga, vegna kuldakasts úti, að fara í eitt stykki ljósatíma. Fór í ljós áðan í fyrsta skipti í égveitiggihvaðlangantíma. Ég veit ég veit, ljós eru stórhættuleg iðja og ég hef ófáum tímunum eytt í að prédika yfir dóttur minni um þetta.... en ég fór samt! Aðallega af því að húðin á mér er búin að vera svo leiðinleg undanfarið og mig langaði að athuga hvort þetta hefði ekki áhrif :-Þ Þegar ég var alltaf í ljósum hér í den þá hafði ég bestu húðina í bænum þannig að ég tók sénsinn... Vonandi verður í lagi með mig samt, hlýtur bara að vera.. hef varla horft á sólargeisla síðan á Spáni 2004 held ég bara. En nóg af afsökunum.

Fréttir dagsins af sjálfri mér eru þær að ég er byrjuð í fimleikum, jííha! Hef lengi leitað að svona oldies fimleikahópi og reyndi mikið að smala saman stelpum til að fá að stofna svona hóp í Gerplu en var búin að gefast upp. En núna hefur einhverjum snillingum tekist að stofna hóp og ég er búin að skrá mig. Æfing á fimmtudaginn kl 20. Og Magga kemur með :-) Verður fróðlegt að sjá hvernig manni tekst að rifja upp flikkin og handahlaupánhanda, hehe... bíð kannski aðeins með það. Get ekki beðið sko!

Svo eru ekki fáir búnir að spyrja mig hvað mér finnist um Magna þessa dagana. Ég ætti ekki annað eftir en að fara að hafa skoðun á því.... svona gerist bara og það er ekki mitt eða nokkurra annarra að býsnast yfir því. Tengdamamma bað mig samt um að fara ekki að skilja til að reyna að ná mér í hann - hahaha - sniðug kona ;-)

Segjum þetta gott og hafið það gott.

Saturday, January 06, 2007

Í Eyjum

Þá erum við stödd í eyjum í fyrsta skiptið á þrettándanum. Þetta eru víst hátíðahöld sem maður verður að upplifa og mikið um að vera. Ég hef aldrei farið á nein hátíðahöld tengd þrettándanum og yfirleitt finnast mér hátíðarnar bara búnar eftir áramót. En þetta er lengra hér í Eyjum þar sem þessi dagur er svona sérstakur. Enda er hér enn macintosh og konfekt á borðum og við auðvitað liggjum í því (sérstaklega við Jökull), rjómaterta á kvöldin og hangikjöt og allur pakkinn. Sem betur náði ég að taka tvær BC æfingar í síðustu viku til að jafna þessa miklu óhollustu aðeins út :-/

Nú stendur yfir atvinnuleit hjá minni. Er búin að tékka á einu sem ég er ekki nógu bjartsýn en er annars með augun galopin fyrir einhverju spennandi. Langar í einhverja skemmtilega vinnu ekki bara "eitthvað". Það eru samt að detta inn eitt og eitt förðunarverkefni sem er gott að geta hlaupið í. Td er ég að fara að farða fyrir tónlistarverðlaun Fm 957 í næstu viku.. það verður bara gaman hugsa ég.

Jæja, best að fara að gera eitthvað fyrst kagglinn minn er kominn í hús. Er búin að vera ansi mikið ein hérna núna.... eða kannski ekki ein, heldur án hans... Get ekki neitað því að mér finnist örlítið betra að hafa hann með okkur hér.

Thursday, January 04, 2007

monnnt

Er búin að hugsa hvort það sé ekki í lagi að birta myndirnar mínar hér frá myndadegi í skólanum... út af höfundarétti og svoeliðis... En það hlýtur að vera í lagi þar sem ég á nú þessar myndir:-)























Magga sæta :-) Og þarna var ég nýbúin að klessa á bílinn hennar... og hún samt svona afslöppuð, hehe.. Sorrý Magga að ég setji inn myndina, þer er vonandi sama. Ég er bara svo montin af þessu, skilurðu?




















Og svo Rut, systir Möggu-Hrundar. Flott stelpa :-)

Takk fyrir að nenna þessu, stúlkur mínar ;-)

Wednesday, January 03, 2007

Litli álfur

Tuesday, January 02, 2007

Nýtt ár

Enn eitt árið byrjað. Um daginn var ég að fletta upp í blogginu mínu og sá þar síðustu áramótheitin mín. Reyndar er það í fyrsta skipti sem ég geri áramótaheit en spurning um að gera svoleiðis oftar þar sem ég stóð bara frekar vel við þau :-)

En við erum búin að hafa það alveg svakalega gott þessi jólin og búin að fá okkar skammt af flestu; rólegheitum og kósístundum með fjölskyldunni, góðum mat, óhollum mat, súkkulaði, góðum gjöfum, mörgum jólakortum, gott grímupartý, tónleikum, flugeldum, vaka fram á nótt, sofa til hádegis, lesa fullt, jólaboð... neimitt! Nóg að gera! En nú er ballið að verða búið. Nú þarf maður að fara að hafa soðinn fisk í matinn og hreyfa sig, fara snemma í háttinn og snemma á fætur og fara að gera eitthvað af viti. Og ég er líka alveg tilbúin í það... . Maður þolir bara vissan skammt af óreglu ;-)

Allir voru eitthvað óhressir með áramótaskaupið heyrðist mér. Ég missti nánast af því þar sem ég var að farða Valdísi systur á meðan á því stóð... ekki það að mér hafi ekki verið sama. En ég sá reyndar síðasta atriðið, Orkuveituauglýsinguna með Þorsteini Guðmunds og dvergnum og hló helling af því. Jú svo sá ég glitta í eitthvað fyndið Magnaatriði sem var fyndið og líka eitthvað Baugsatriði sem var ekki eins fyndið. Ætla að horfa á þetta í kvöld, er alveg viss um að þetta hafi ekki verið svo slæmt.

Fyrsta kvöldi ársins var eytt hér í Galtalindinni með Gylfa, Ýr og Róberti Steini en þau komu hingað í lambalæri. Mikið rætt um Hálsaþing og hvurslags slot þetta verður. Stefnan er að vera flutt fyrir næstu jól, vonum að það takist. Þessu miðar allavega ágætlega ;-)

Gott í bili, kíkið á grímuballsmyndirnar hér að neðan (takk fyrir okkur Nonni og Berglind ;-))

Monday, January 01, 2007

Grímupartý